Nokia 9300 - Pakkagögn (general packet radio service, GPRS)

background image

Pakkagögn (general packet radio service, GPRS)

GPRS gerir farsímum kleift að tengjast gagnanetum með þráðlausri tengingu (sérþjónusta). GPRS notast við pakkagagna tækni

þar sem upplýsingar eru sendar í stuttum gagnakippum gegnum farsímakerfið Kosturinn við að senda gögn í pökkum er að

símkerfið er aðeins upptekið þegar gögn eru send eða móttekin. Þar sem GPRS notar símkerfið með skilvirkum hætti er fljótlegt

að koma á gagnatengingum og flutningshraðinn er mikill.
Þú verður að vera í áskrift að GPRS-þjónustunni. Þjónustuveitan eða símafyrirtækið gefur nánari upplýsingar um framboð og

áskrift að GPRS.
EGPRS (Enhanced GPRS) er svipað GPRS en býður upp á enn hraðari tengingu. Þjónustuveitan eða símafyrirtækið gefur nánari

upplýsingar um framboð og áskrift að EGPRS og hraða gagnaflutninga. Athugaðu að ef þú valdir GPRS sem gagnaflutningsmáta

notar tækið EGPRS í stað GPRS ef það er í boði hjá símkerfinu.
Athugaðu að meðan á venjulegu símtali stendur geturðu ekki komið á GPRS-tengingu og virk GPRS tenging er sett í bið.