
Setja inn og breyta hlutum
Hlutir í textaskjölum eru ekki tenglar heldur ívafin viðhengi sem geta stórlega aukið stærð skjalsins. Sumar tegundir hluta eru
aðeins sýndar sem tákn.
Styddu á
Insert object
til að setja hlut inn í skjal. Veldu af listanum hverskonar hlut þú vilt búa til. Styddu á
Insert new
til að opna
samsvarandi ritil og búa til nýjan hlut eða styddu á
Insert existing
til að opna lista yfir eldri skrár. Aðeins þær skrár sem hægt
er að setja inn birtast á listanum. Veldu skrá og styddu á
OK
.
Til að breyta stærð myndar skaltu velja myndina, styðja á Valmynd og velja
Edit
>
Object
>
Object details...
. Á
Scaling
síðunni
getur þú tilgreint breidd og hæð myndarinnar eða breytt stærð myndarinnar um ákveðið hlutfall. Á
Cropping
síðunni getur þú
klippt af myndinni. Athugaðu að þú getur ekki breytt stærð tákna.
Til að opna hlut til að skoða eða breyta veldu hlutinn og styddu á "enter"-takkann.
Til að fjarlægja hlut úr skjali, veldu hlutinn og styddu á "backspace"-takkann.