
Sending raddupptöku
Þú getur sent raddupptöku úr tækinu þínu í annað tæki í gegnum innrauða tengingu eða Bluetooth, sem tölvupóst eða í
margmiðlunarboðum.
Til að senda raddupptöku í annað tæki í gegnum innrauða teningu, gakktu úr skugga um að tengingin sé virk í móttökutækinu.
Veldu raddupptöku, styddu á Valmynd, veldu
File
>
Send
og notaðu innrauða valkostinn. Innrauð tenging er ræst sjálfkrafa og
raddupptakan send í móttökutækið.
Til að senda raddupptöku með Bluetooth, gakktu úr skugga um að Bluetooth sé virkt í móttökutækinu. Veldu raddupptöku,
styddu á Valmynd, veldu
File
>
Send
og notaðu Bluetooth valkostinn. Ræstu Bluetooth í tækinu þínu, leitaðu að móttökutækinu,
veldu tækið úr listanum yfir tæki sem eru í boði og veldu Senda. Ef tækin eru pöruð og viðurkennd, eða ef aðgangskóði er
staðfestur, er raddupptakan send í móttökutækið þegar virkri Bluetooth-teningu hefur verið komið á.
Til að senda raddupptöku í tölvupósti, veldu raddupptökuna sem þú vilt senda, styddu á Valmynd, veldu
File
>
Send
og síðan
póstvalkostinn. Póstforritið opnast sjálfkrafa og hægt er að senda raddupptökuna sem viðhengi í tölvupósti.
Til að setja raddupptöku inn í margmiðlunarboð, veldu raddupptökuna sem þú vilt senda, styddu á Valmynd, veldu
File
>
Send
og veldu síðan valkost margmiðlunarboða. MMS-forritið opnast sjálfkrafa og hægt er að senda raddupptökuna sem
viðhengi í margmiðlunarboði.