Nokia 9300 - Sync (Samstilling)

background image

Sync (Samstilling)

Með

Sync

forritinu geturðu samstillt dagbók eða tengiliði þína við mismunandi dagbókar- og heimilisfangaforrit á samhæfri

tölvu eða ytri netmiðlara. Stillingar (hvaða gögn eru samstillt og hvaða tenging er notuð) eru vistaðar í samstillingasnið, sem

er notað við samstillingu.

Ábending: Þú getur einnig fengið stillingar fyrir samstillinguna sendar sem skilaboð frá þjónustuveitunni.

Forritið notar SyncML-tækni við fjartengda samstillingu. Söluaðili forritanna sem þú vilt samstilla tæki þitt við veitir frekari

upplýsingar um SyncML samhæfni.
Farðu í

Desk

>

Tools

>

Sync

.

Tækið þitt inniheldur snið fyrir Nokia PC Suite. Breyttu aðeins PC Suite sniðinu með Nokia PC Suite.
Samstilling dagbókar- og tengiliðaupplýsinga og tölvupósts
1. Tengdu tækið þitt við samhæfa tölvu. Þú getur notað internetið, Bluetooth eða snúrutengingu. Þú getur einnig tengt

borðstandinn þinn við tölvu með gagnasnúru, og sett tækið í borðstandinn.

Sjá „Tengimöguleikar“, bls. 80.

Ef þú vilt nota Bluetooth, þarftu fyrst að stilla Bluetooth-tenginguna milli tækisins þíns og Nokia PC Suite með því að velja

Stjórna tengingum og opna Nokia Connection Manager (Stjórnanda tengingar). Frekari upplýsingar er að finna í

notendahandbókinni fyrir Nokia PC Suite.

2. Opnaðu Nokia PC Suite í tölvunni þinni og veldu Samstilla. Þá opnast Nokia PC Sync.
3. Ef þú tengdir tækið þitt við tölvu með gagnasnúru og borðstandi skaltu styðja á sync hnappinn (samstillingarhnappinn) á

borðstandinum. Ef þú tengdir tækið þitt við tölvu um Bluetooth skaltu nota Nokia PC Sync til að hefja samstillinguna.

Nýtt snið búið til
1. Tækið þitt inniheldur fyrirfram skilgreint snið fyrir PC Suite. Til að búa til önnur snið skaltu styðja á Valmynd og velja

File

>

New

. Þá opnast aðstoðin fyrir gerð sniðs sem hjálpar þér að velja réttar stillingar.

2. Tilgreindu eftirfarandi valkosti:

Profile name

— Sláðu inn lýsandi heiti fyrir sniðið.

Connection type

— Veldu

Bluetooth

eða

Data cable

til að samstilla við tölvu, eða

Internet

til að samstilla við miðlara á

Netinu.

Access point

— Ef þú valdir

Internet

sem gerð tengingar, veldu Netaðgangsstað.

Host address

— Sláðu inn veffang samstillingarmiðlarans.

Port

— Ef þú valdir Netið sem gerð tengingar, færðu inn gáttarnúmer samstillingarmiðlarans.

User name

— Færðu inn notandakenni þitt fyrir samstillingarmiðlarann.

Password

— Færðu inn lykilorðið þitt fyrir samstillingarmiðlarann.

Confirm password

— Endurtaktu lykilorðið fyrir samstillingarmiðlarann.

3. Veldu hvort þú vilt samstilla tengiliði, dagbókarfærslur eða tölvupóst.
4. Færðu inn slóðirnar að gagnagrunnunum í tækinu þínu og á ytri miðlaranum og veldu

Synchronisation type

. Veldu

Normal

til að samstilla upplýsingar úr tækinu við ytri miðlarann og öfugt,

One-way to telephone

til að samstilla upplýsingar

af ytri miðlaranum við tækið eða

One-way from telephone

til að samstilla upplýsingar úr tækinu við ytri miðlarann.

5. Veldu hvort þú vilt nota sniðið sem þú bjóst til sem sjálfgefið samstillingarsnið.
Ef þú vilt endurvekja sjálfgefnar stillingar PC Suite, styddu á Valmynd og veldu

Tools

>

Reset PC Suite profile

.

Til að breyta tilbúnu sniði, veldu sniðið og styddu á

Edit

.

Til að gera eitt tilbúinna samstillingarsniða að sjálfgefnu sniði, veldu sniðið, styddu á Valmynd og veldu

File

>

Tools

>

Set as

default

.

H a l d i ð u t a n u m g ö g n o g h u g b ú n a ð

Copyright © 2004-2005 Nokia. All Rights Reserved.

77

background image

Til að samstilla allt innihald gagnagrunns milli tækis og miðlara, styddu á Valmynd og veldu

File

>

Sync

>

Slow sync

. Athugaðu

að með þessu er samstillingargerðin sem ákveðin er fyrir snið hundsuð.
Til að eyða sniði, veldu sniðið og styddu á „backspace“ takkann.
Til að eyða gagnagrunni úr tækinu og skipta honum út fyrir gagnagrunn af miðlaranum, styddu á Valmynd og veldu

File

>

Sync

>

Replace telephone data

.

Til að eyða gagnagrunni af miðlara og skipta honum út fyrir gagnagrunn í tækinu, styddu á Valmynd og veldu

File

>

Sync

>

Replace server data

.

Eftir að þú hefur samstillt tækið þitt við samhæfa tölvu geturðu skoðað notkunarskrá samstillingar.
Til að opna notkunarskrá samstillingar, veldu snið og styddu á

Log

. Notkunarskráin sýnir t.d. dagsetningu og tíma