Java™ forrit sett upp
1. Leitaðu að uppsetningarskránni í minni tækisins eða á minniskorti, veldu skrána og styddu á enter-takkann til að hefja
uppsetninguna. Ef þú til dæmis fékkst uppsetningaskránna senda sem viðhengi í tölvupósti, farðu í pósthólfið, opnaðu
tölvupóstinn, veldu uppsetningarskrá og styddu á enter-takkann til að hefja uppsetninguna.
2. Staðfestu uppsetninguna. Skráarviðskeytið .JAR er áskilið fyrir uppsetninguna. Ef það vantar getur verið að tækið biðji þig
um að hlaða því niður. En enginn aðgangsstaður er tilgreindur ert þú beðinn um að velja einn. Þegar þú hleður niður .JAR
skránni gætirðu þurft að slá inn notendanafn og lykilorð til að fá aðgang að miðlaranum. Þú getur fengið þau hjá
dreifingaraðila forritsins.
3. Tækið lætur þig vita þegar uppsetningu er lokið.
Ábending: Á meðan þú ert að skoða vefsíður getur þú hlaðið niður uppsetningarskrá og sett hana upp strax . Athugaðu
að tengingin er virk í bakgrunninum á meðan á uppsetningu stendur.
Java
Þú getur sett upp og keyrt Java-forrit í tækinu þínu.
Sjá „Forrit og hugbúnaður settur upp“, bls. 78.
Java grunnurinn fyrir Nokia 9300 er J2ME. Þú getur leitað að Java-forritum með vafranum, hlaðið þeim niður af Netinu og geymt
þau í Forritamöppunni.
Notaðu
Application manager
til að halda utan um Java-forritin þín.
J2ME í tækinu þínu styður tvö Java umhverfi: MIDP og Persónulegt Snið.
Ábending: Upplýsingar um hugbúnaðarþróun (forritun) má finna á www.forum.nokia.com. Á Forum Nokia er einnig
að finna Series 80 Developer Platform, Java Software Development Kit (SDK), tól, tæknilegar athugasemdir og forrit.