
Sniðstillingar
Þú getur stillt og sérsniðið hringitónana fyrir mismundandi viðburði, umhverfi og viðmælendahópa.
Til að breyta sniði, veldu
Telephone
>
Profile settings
. Veldu snið úr listanum og styddu á
Edit
. Til að búa til nýtt snið, styddu á
New
. Tilgreindu stillingarnar á síðum
Profile settings
skjásins. Ekki er hægt að breyta öllum stillingum í öllum sniðum.
Tilgreindu eftirfarandi:
•
Name
— Þú getur endurnefnt snið og gefið því hvaða nafn sem þú vilt.
General
og
Offline
sniðin er ekki hægt að endurskíra.
•
Ringing type
— Ef þú velur
Ascending
, hækkar styrkur hringingarinnar smám saman frá fyrsta stigi og til þess stigs sem þú
hefur ákveðið.
•
Ringing tone
— Styddu á
Change
til að velja hringitón af listanum. Ef hljóðskráin er geymd á minniskortinu eða í annarri
möppu, styddu á
Browse
til að leita að skránni. Til að hlusta á þann tón sem þú velur, styddu á
Play
. Ef þú ert með tvær
símalínur getur þú haft sér hringitón fyrir hvora línu.
•
Personal tones
— Veldu
On
ef þú vilt nota sérstaka hringitóna fyrir þá sem eru í tengiliðaskránni þinni.
•
Clock alarm
— Veldu tóninn sem vekjaraklukkan þín á að gefa frá sér. Eins getur þú tilgreint hringitón fyrir skilaboð úr
dagbókinni sem og fyrir móttekin textaboð, margmiðlunarboð og föx.
•
Keyboard tone
— Stilltu hljóðstyrkinn í Communicator-lyklaborðinu.
•
Telephone keypad tone
— Stilltu hljóðstyrkinn í takkaborði símans.
•
Notification tones
— Stilltu tónana sem síminn gefur frá sér, t.d. þegar rafhlaðan er að tæmast.
•
Play ringing tone for
— Þú getur stillt símann þannig að hann hringi aðeins þegar um er að ræða símanúmer í ákveðnum
viðmælendahópi. Enginn hringitónn heyrist ef fólk utan þess hóps hringir.