
Uppsetningarstillingum breytt
Til að breyta uppsetningarstillingunum, veldu
Data management
>
Application manager
og svo
Preferences
síðuna. Þú hefur
valkosti tengda uppsetningu hugbúnaðar.
•
Delete source file after installation
— Ef þú velur
Yes
er uppsetningarskrá hugbúnaðarpakkans eytt út úr tækinu þegar
uppsetningu er lokið. Ef þú hleður niður hugbúnaðarpökkum í gegnum vafra getur þú sparað geymsluminni. Ef þú vilt geyma
skrá hugbúnaðarpakkans svo þú eigir kost á því að setja hann upp aftur skaltu ekki velja þennan valkost, ellegar tryggðu að
þú eigir afrit af hugbúnaðinum í samhæfri tölvu eða á geisladisk.
•
Preferred language
— Ef hugbúnaðarpakkinn er með nokkra tungumálavalkosti, veldu það tungumál sem þú vilt að sé notað
þegar hugbúnaðurinn er uppsettur.
•
Install application
— Tilgreindu hvaða tegund forrita þú vilt setja upp. Ef þú velur
Only certified
eru aðeins forrit með
viðurkenndum vottorðum sett upp. Það skal taka fram að þessi stilling er aðeins í boði fyrir forrit í Symbian-stýrikerfinu (SIS
files).